Psalms 48

1Ljóð. Kóraítasálmur. 2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli. 3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs. 4Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi. 5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman. 6Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu. 7Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu. 8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru. 9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela] 10Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu. 11Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis. 12Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna. 13Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar. 14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð, [ (Psalms 48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss. ]
Copyright information for Icelandic